|
Heimsóknir
Í dag: 9 Alls: 55780
|
05.02.2010 14:09:27 / rkeli
Þá fer nú að styttast í kosninguna um Icesave samninginn og fer það trúlega ekki framhjá neinum að ég er á móti honum og hef ég nú þegar kosið um þetta í fjarkosningu. Ég var nú að vona að geta barið skýrslu alþingis um hrunið augum áður en kæmi að þessari kosningu en það verður víst ekkert af því, en eftir fréttum að dæma þá er þetta víst eitthvað rosalegt sem er að finna í þessari skýrslu. En verður þetta bara ekki eitthvað sem allir vita, spillingin hjá stjórnmála mönnunum og jú konunum líka og þeirra tengsl við fjármálageirann hér og krosstengsli þessara aðila inn í viðskipta lífið hér með þeirra áhrifamátt sem hefur verið misnotaður í öllu þessu sukki. Já mafían hér á landi er sterk og verður það erfitt fyrir landsmenn að losna við þetta, flestir eru svo blindir og reina bara að koma sökinni útfyrir landssteinana og gleyma að líta í sinn eigin bakgarð. Já stór breyting á Íslensku stjórnmála kerfi og einnig á stjórnarskrá eru eina leiðin til að gera þetta land aftur að trúverðugum vettvangi stjórnmála. Á meðan að fyrirkomulagið er eins og það er í dag á vetfangi stjórnmála og stjórnstýringu þessara flokka þá er þetta land og þjóð þess dæmd til að verða misnotað af stjórnmála klíkunni. Það er ekkert sem heitir að kjósa sjálfstætt á alþingi, ef að þú kýst ekki það sem flokkurinn vill þá er sá hinn eða hún sem það gera útskúfuð af flokknum. Já það er ekkert sem heitir sjálfstæði þegar kemur að alþingi og öll þessi kosningar loforð sem þessir einstaklingar gefa í sinni baráttu um sætin góðu eru bara orðin tóm því að á endanum þá ræður flokkurinn hvað verður gert og hvernig verður kosið um málin. Já íslenskir einstaklingar ættu að rísa upp á móti þessu kerfi og heimta breytingar því á meðan að kerfinu er stjórnað svona þá verður aldrei breyting hér á landi og spillingin mun aldrei stoppa. Já rísa bara upp allir og láta sína skoðun flakka og vera trúr sjálfum sér en ekki einhverjum flokki sem mun segja já og amen við öllu til að komast að völdum en svo verður þetta bara flokksins regla og lög en þú situr eftir sem atkvæði sem flokkurinn mun nota sér til hagræðis. Já það þarf breytingar á kerfinu sem mun leifa einstaklingum að komast á kjörseðil sem utanflokka fólk og þannig inn á þing, þetta mundi stuðla að breyttu stjórnarfari hér og þingmenn og konur mundu greiða atkvæði samkvæmt eigin sannfæringu en ekki samkvæmt flokkareglunni. Jæja nóg af þessu rausi. En hinsvegar er ég á leið til USA aftur og er ekki vitað hversu lengi ég verð þar en það gæti allt eins verið að maður komi ekki aftur hingað til að búa hér, en aðal ástæðan núna er sú að mágur minn og einn bróðir minn eru báðir mjög veikir og guð einn veit hversu lengi þeir eiga eftir að vera hér hjá okkur. Svo þessi ferð er nauðsyn af minni hálfu til að friða hug og sálu og einnig til að geta verið við hlið fjölskildu á erfiðum tímum og aðstoða við það sem aðstoða þarf á svona tímum. En vinnan hér í Álbransanum gengur vel og er allt annað bara gott héðan úr litla kotinu á austfjörðunum. Munið bara að brosa til allra og ykkar sjálfra, brosið er eitthvað sem á engin landamæri né er stjórnmála tengt svo ekki spara það. Kveðja Keli
»
17.01.2010 17:39:41 / rkeli
Icesave of flókið fyrir þjóðarkosningu að mati Fjármálaráðherra, er þetta pakk ekki með réttu ráði. Auðvitað á að leifa þjóðinni að hafa allt um þetta að segja. Að þjóð sem telur sig vera svo mentaða og oft svo yfir aðra hafna að þjóðaratkvæði skulu ekki vera hér í boði í helstu málum sem snerta þjóðina og hennar afkomu. Nei þetta er eitthvað sem er erfitt að skilja, en svo á hinn bóginn jú ég er búinn að búa í landi sem flestir hata en þar eru þó helstu mál afgreidd með þjóðaratkvæðum og er það víst liður í því að vera sjálfstæð þjóð með mannréttindin og vilja þjóðarinnar að leiðarljósi. Þar eru flest mál eins og söluskattur og sérskattar settir í atkvæði meðal íbúa fylkjanna ef stjórnendur fylkjanna eru að reyna að breyta sköttum en þó getur alríkisstjórnin breitt sinni álagningu en það er sem betur fer ekki algengt og eru allar breytingar sem eru samþykktar af þingi í sambandi við stjórnarskrá settar í atkvæðagreiðslu. Þar eru allir dómarar nema alríkisdómarar kosnir af fólkinu en ekki ráðnir af vinum í einhverjum flokkaklíkum, ráðherrar eru settir í starf af forseta en þurfa að vera samþykktir af þingi og eru því bara sett í þau störf fólk með reynslu og getu til að vinna í sínu fagi og er þá yfirleitt horft framhjá flokkapólitík til að fá hæfustu manneskjuna í stöðuna. Hér á landi er það flokkurinn sem hefur betur í kosningum eða flokkarnir sem fara í samstarf sem ráða hverjir fái að stjórna og hverjir verða ráðherrar og er þá ekki litið á hæfileika né getu einstaklings til að framkvæma verkefnið en bara litið á hvern þú þekkir. Þessu þyrfti að breyta hér en því miður verður það trúlega ekki í minni lífstíð en vonandi í þeirra sem eru að alast upp og eiga að erfa rústirnar sem stjórnin stefnir í að skilja eftir fyrir framandi kynslóðir. Ég trúlega eignast ekki marga vini með þessum skrifum mínum en mér er alveg sama, þetta er ekki um að eignast vini en um það að tjá sínar hugsanir og hvað ég sé og held um að hinar ýmsar hliðar lífsins hafi að gera með lífsgæðin í þessu landi. Ég vitna oft í USA en það af því að þar þekki ég til hvernig stjórnmála og framkvæmda valdið virkar og væru margir sem eru hér á landi að hallmæla því stjórnarfari sem þar ríkir heppnir ef að bara smá réttlæti kæmi hingað frá því samfélagi, já þá værum við ekki að tala Icesave né væru Bretar og Hollendingar að tala um skuldir íslendinga út af icesave, það mál væri búið og jú engar skuldir á ríkinu vegna þessa máls og sumir af landsins útrásarvíkingum væru á Litla Hrauni. Já svona er þetta bara útfrá mínu sjónarhorni og verður því trúlega ekki breitt, nema að margir og mikilvægir hlutir breytast hér á landi. Ég verð trúlega fluttur úr landi áður en þetta allt hrynur og er bara vonin að þegar að allt hrynur að íbúar þessa lands verði ekki útskúfaðir út frá alheiminum og að það verði ennþá til fólk hér sem stendur upp fyrir hinum almena borgara. En héðan af austfjörðum er bara allt gott að frétta, vinnan er enn hér og allt á fullu þar. Með kveðju og bros úr litla kofanum á austfjörðunum..Keli
»
08.01.2010 16:12:21 / rkeli
Ég er búinn að vera að tuða og væla um hversu óréttlátt þetta icesave dæmi er orðið fyrir hinn almenna borgara þessa lands. Af hverju ættu þegnar þessa lands að taka á sig skuldir einkafyrirtækja? Ég hef verið eindregið á móti því frá byrjun og er það trúlega af því að ég bjó í landi þar sem þeir sem báru ábyrgðina voru og eru dregnir fyrir dómstóla og látnir borga fyrir gjörðir sínar. Þetta er því miður ekki dæmið hér á landi, ef ég á fyrirtæki þá fæ ég einn arðinn og nýt hans en ef fyrirtækið fer á hausinn þá hirði ég það sem enn er einhvers virði en þú hinn almenni borgar mun borga upp skuldirnar mínar á meðan ég sóla mig einhverstaðar í skattaparadís, jú og þínir stjórnmála menn munu ábyrgjast að þú borgir fyrir mig með því að setja lög þannig að þú getur ekki sloppið frá þessu. Já svona er þetta íslenska kerfi upp byggt og verður áfram nema að það verði breytingar á íslensku stjórnar og hugsunar fari. Forsetinn var útskúfaður af ríkisstjórninni eftir að hann neitaði að skrifa undir 100 ára þrældóm íslendinga en núna eru flestir farnir að vakna og sjá að þetta sem hann gerði á trúlega eftir að bjarga þessari þjóð frá því að hrökkva í ánauð Breta og hollendinga. Ég þakka honum hér með þó ég sé engin ádáðandi hjá honum. Núna virðist því miður að þessi ríkisstjórn sé að hringja í Breta og Hollendinga og biðjast afsökunar á gjörðum forsetans, og á sama tíma að lofa upp í ermina á sér að hver einasta króna verði borguð þó að það virðist vera farið að skýrast að við berum engan lagalega skyldu til að borga fyrir þessi einkafyrirtæki. Hvað er það sem þessir útrásar víkingar hafa á íslenska stjórnmála menn? Það virðist ekki skipta máli úr hvað flokki þeir komi, allir eru þeir hræddir við eitthvað, eru þeir sjálfir komnir svona langt í þetta sukk að réttlát lausn muni kollsteypa þeim líka? Ef við komumst svo langt að fá að kjósa um þetta mál þá er það hér upplýst að ég mun greiða á móti þessu icesave rugli, en ef skyldi að þjóðin samþiggi icesave málið þá er hér eitt loforð frá mér ÉG MUN FLITJA AFTUR ÚT TIL USA tek ekki þátt í að borga eitthvað sem ég tel að ég né nokkur annar almennur borgari þessa lands skuli borga. Núna er bara að vona að stjórnmála mennirnir geri hið rétta í þessu máli. Annars er allt annað gott hér á austurlandinu, bara unnið og unnið og svo jú leikið sér í snjónum þess á milli. Jæja þetta er nóg í dag, vona bara að allir eigi góðan dag og njóti þess að vera til...Bros til allra héðan úr litla kotinu á austfjörðunum.. Keli
»
03.01.2010 23:31:36 / rkeli
Gleðilegt ár og þakka fyrir það liðna. Já ég er hér enn og er að hugsa um að skrifa nokkrar línur hér, en það er komið yfir 5 mánuðir síðan ég kvartaði hér síðast. Seinni helmingur síðasta árs var bara þokkalegur ef frá er talið að ég sagði upp minni vinnu hjá Alcoa og dró svo uppsögnina til baka en samt er staðan sú í dag að maður gæti sagt upp hvenær sem er, en samt verður það gert með stífri hugsun og rökfærslu áður en það kemur til greina. Skrapp heim til Florida í October og var dvalið þar í 3 vikur. Þetta var svolítið erfið ferð, að hitta þá sem eru manni næstir og vita að maður þarf að kveðja aftur og næstum vita það að suma muni maður ekki hitta aftur í þessu lífi. Mágur minn er með krabbamein og er það komið á það stig að það er ekkert sem getur stoppað það. Stjáni bróðir var óvenjulega hress en samt hefur honum hrakað og núna eftir að ég kom til baka þá hefur hann misst stórutá á hægrifót og er hann mikið sár yfir því, en hægri hliðin á honum er sú sem hann hefur vald á. En Stjáni hefur sýnt það að hann gefst ekki upp og þess vegna er hann og verður hér hjá okkur áfram. Af hinum fjölskyldumeðlimum er bara allt gott að frétta. Já er enn að bíða eftir hvað þessi blessaði forseti okkar ætlar að gera, skrifa undir eða senda þetta aftur til alþingis. Já það væri gaman ef að þjóðin fengi lýðræði og mætti kjósa um þetta Icesave mál, þá væri ekki við nokkurn að saka. En samt í mínum huga þá eru það eigendur og stjórnendur bankanna sem eiga og ættu að bera fulla ábyrgð á þessum málum, skil ekki dómsvaldið í þessu landi að það skuli ennþá ekki vera búið að stöðva þetta pakk. Jú eignir hafa verið kyrrsettar hjá einum manni og er það allt og sumt. Enn bíður maður eftir að einhverjir af þessu ráðherra og stjórnarráðs pakki taki á sig ábirgð á einhverju af þessum ógöngum en nei það gerir þetta fólk ekki, það veit ekki hvað ábirgð er og því síður hvað heiðarleiki er. Og jú nú ætlar alþingi að rannsaka sig sjálft og er það trúlega gert til að halda þessu öllu frá almenningi og vera viss um að allt sem má ekki finnast né sjást lendi undir teppinu og verði þar næstu 80+ árin. Einn útrásarvíkingurinn er kominn á fullu í sukkið aftur með hjálp ríkisstjórnarinnar og er það nú í formi gagnavers á suðurnesjunum og fær hann skatta og fleiri ívilnanir til að reisa þetta gagnaver hversu stutt er minnið hjá þessu fólki eða er hann með eitthvað á móti þessu fólki svo allir segja bara já og amen við hverju sem er hjá honum. Nei þeim um lengra sem þetta dregst þá eru líkurnar á að engir verða saksóttir né ábyrgðin verði sett á einhvern, því enginn á þessari eyju virðist ætla að taka ábirgð á einu ná neinu í sambandi við allt þetta útrásarsukk, bara kenna því upp á USA eins og svo mörgu öðru og halda svo áfram í blindni eins og leikskólakrakkar. Maður hryllir við því að hugsa 10 ár fram í tíman ef icesave verður undirskrifað eins og það er. Þessi þjóð verður svo mikið í vandræðum að við verðum að eta okkar fisk og fébúnað. Vöruúrvalið verður trúlega eins og það var á milli stríðsáranna. Útaf hverju er ég svona svartsýnn þá er það af því að ef að skuldirnar eru 40 miljarðar + umfram þjóðarframleiðslu á ári þá er þatta einfalt dæmi það getur ekki gengið upp og hér verður eymd og volæði næstu 20 – 30 árin. Jæja hef þetta bara stutt í kvöld. Með kveðju héðan úr kotinu á austfjörðunum, Keli
»
01.07.2009 19:46:17 / rkeli
Jæja ég er enn hér en hef verið latur að skrifa, veðrið og sumarskapið hafa bara þessi áhrif á mann ekki það að það sé ekki af nógu til að kvarta og kveina yfir. Jæja svo virðist vera að við þurfum að taka á okkur skuldir örfáa manna sem eru betur þektir sem útrásarhetjur norðursins! Já skuldir sem 99.eitthvað% af þjóðinni hafði ekkert með að gera og vissi ekki að væru til fyrr en banka mafían féll á andlitið og arfleiddi þjóðina að einu mesta fjárglæfra hneyksli okkar tíma. Já icesave á eftir að koma okkur í mikil vandræði seinna með ef þessi sáttmáli verður samþykktur. Af hverju er ekki farið á eftir þessum mönnum sem eru ábyrgir já þessum sem eru nú í óðaönn að kaupa upp fyrirtækin á bruna útsölu, fyrirtækin sem þeir sáu um að færu á hausinn með sínum snilldar bankagjörningum. Maður bara spyr, hvenær verður farið í það að frysta eigur þessara manna og hvenær verður sett á þá farbann og þó að maður tali nú ekki um bann við aðkomu þeirra að viðskipta lífinu.. bara að leifa þeim að sópa götur þangað til þeir flytja inn á hraunið. Nei íslensk lög og stjórnarskrá er gerð fyrir svona fólk og á meðan að ekki verða breytingar á löggjöf og stjórnarskrá þá mun þetta vera allt löglegt hér á landi. Hvernig væri að fólkið stæði upp og stoppaði þennan sirkus sem flestir kalla alþingi og hvað höfum við með 63 þingmenn að gera, það skiptir ekki máli ef það eru 10 eða 63 þessu er öllu saman stjórnað af miðstjórnum flokkana hvort sem er og virðist sem að það sé þögul lög um það að þú sem þingmaður – kona greiði þitt atkvæði með þínum flokk og þá skiptir ekki máli hvort þín skoðun né samviska segi annað. Svo með öðrum orðum þingmaður – kona eru flokksbundin og ef ekki er greitt atkvæði með flokknum þá ertu úrkast og átt trúlega mjög erfiðan tíma sem þú átt eftir af þingsetunni þinni. Er það bara ég en er ekki eins og að allir eða frekar flestir séu hættir að kalla eftir réttlæti gegn þessum útrásar hetjum og virðist sem flestir þeirra hafi bara gufað upp og eru trúlega hlæjandi á einhveri eyjunni í karabíska hafinu að plana næstu útrás með íslenska banka geirann þegar hann verður einkavæddur aftur. Hvernig er þetta með ríkisstjórnina, af hverju ber ekki saman fréttunum frá VG og SAMF. Hví eru þeir ekki samhljóða í yfirlýsingum sem koma frá stjórninni. Er þetta samstarf bara til að sýnast og er það bara gert til að koma ákveðnu fólki i ákveðin störf innan hins stóru ríkismaskínu sem stjórnar öllu hér. Já það er svolítið skrítið að vera algjörlega utanaðkomandi hér á þessu landi í dag og sjá alla þessa spillingu enn í fullu veldi hér en ég tel mig ennþá vera utanaðkomandi eftir öll þessi ár sem ég var fjarverandi og hvorki heyrði né vissi hvernig stjórnmál og viðskipta heimurinn á íslandi var í yfir tuttugu ár. Já verð að segja að ég er enn í losti yfir hvernig á málunum er tekið hér og ættu allir sem eru viðriðnir alþingi og bankastjórnunar störf síðustu árin fyrir svo kallað hrun að skammast sín og sína þjóðinni þá virðingu sem henni ber og segja sig úr stjórnmála og banka störfum og bara fá sér sæti og bíða dómsdaga sinna. Já núna hljóma ég eins og einhver uppreisnarmaður en ég er friðar sinni en get samt ekki setið hjá og horft upp á hvernig ríkisbáknið er að kollsteypa öllu hér á landi. Ef eitthvað af þessu sem er búið að ske undanfarið ár hefði skeð þar sem ég bjó áður þá væru margir komnir í lítinn klefa sem þeir hefðu engin lyklavöld að og hurðinni yrði læst utanfrá. Já allt þetta er bara til stór skammar hjá Íslensku stjórnmála mönnunum sem stjórnuðu hér síðustu 10 – 15 ár. Þetta er bara mín skoðun á þessum málum og vona bara að eingin taki þessu persónulega en ef það skeður þá er sá eða sú ekki alveg með allt hreint í sálartetrinu gagnvert þessum málum. Jæja þá en hér á austurlandi þá gengur lífið bara mjög vel og hefur verið meir en nóg að gera í vinnunni, en núna þá er ég í veikinda frýi. Ég fór á Vatnsnesið fyrir um 2 vikum og var það rosa fjör og hitti ég sibbu systir þar og var fjaran út nesið gengin og svo var borðað í hamarsbúð og var þar á boðstólum frekar sjaldgæfur matur en samt góður. Hef verið að labba svolítið upp fjöllin hér og er þetta bara hrein paradís hér þegar kemur að gönguleiðum hér um austfirsku alpana. Annars fer að líða að sumarfríi og verður því varið að mestu í fjallgöngur og einnig í göngur um ókunnar slóðir en er ekki alveg búinn að skipuleggja frýið. Langar á vestfirðina en samt ekkert enn fastmótað í þessu. Fer þessa helgina sem er framundan í suðursveitina og mun ég hitta Sibbu, Fanney, Már og þeirra börn þar og verður það gaman og er hugurinn komin þangað nú þegar. Jæja læt þetta duga í bili og vona bara að allir séu með brosið með sér hvert sem farið verður nú í þessu góða veðri sem er að leika við okkur núna. Já bið bara að heilsa héðan úr litla kotinu á austfjörðunum og óska öllum það besta. Kveðja keli.
»
29.05.2009 14:57:23 / rkeli
Jæja ætli það sé ekki kominn tími á smá skrif hérna, hef ekki verið í skrif stuði undanfarið en núna er mælirinn fullur og tími til að bæta úr því. Jæja þá nýja stjórnin sem svo margir bundu vonir sínar við í sambandi við að koma þessari þjóð út úr öllum ógöngunum sem orðnir voru út frá stjórnleysi og græðgi undanfarinna ára hefur trúlega sett síðasta naglann í kistulokið hjá mörgum fjölskildum með þessari skattahækkun sem tók gildi í gærkveldi. Já takk 10 krónur á bensín, 5 á dísil og bifreiðargjald um 10% + áfengis og tóbaksgjöld um 15% já og allt þetta fer beint út í vísitöluna. Já ríkið ætlar að græða á þessu en því miður þá held ég að sú tekjuaukning sem á að koma með þessum hækkunum verði ekki að raunveruleika því núna fyrst þá byrjar bruggið á fullu og svo munu margir hætta að reykja og ferðalög sumarsins verða bara styttri. Nú svo fer þetta beint út í vísutöluna og hækkar greiðslu byrði heimila en setur meiri pening í vasa lánenda. Hvernig væri það að þessi blessuð ríkisstjórn mundi nú taka á honum stóra sínum og fara að vinna fyrir þá sem kusu þá og afnema verðtryggingu af lánum strax. Þetta er trúlega eina landið í heimi þar sem lánaveitendur eru tryggðir gegn verðbólgu en lánatakandi er skildaður samkvæmd lögum til að greiða lánveitanda bætur vegna verðbólgu sem hvorki lántakandi né lánveitandi hefur nokkuð með að gera nema þá helst að búa á Íslandi. Já ég sé einhvernvegin fyrir mér stjórnar slit áður en langt um líður og jafnvel aðrar kosningar. Það gæti jafnvel farið út í mótmæli sem láta fyrri mótmæli líta út eins og barnaskóla leik. Er bara hissa hvernig þjóðin lætur taka sig svona í krapið og ekkert er sagt opinberlega eins og gert var með síðustu ríkisstjórn ekki það að ég hafi verið fylgjandi síðustu stjórn en fyrr má nú rota en dauðrota. Vinstri stjórn var hrópað á og vinstri stjórn kom og rotaði. Ég get ekki séð stjórnmála flokk hér á landi eins og málin standa í dag sem hefur vilja né getu til að bjarga þessari þjóð frá algjöru hruni. Það er hver höndin upp á móti hverri annarri á þingi og skiptir þá ekki máli hver flokkurinn er. Að mínu áliti þá væri réttast að koma þessu pakki frá völdum og koma inn þjóðarstjórn sem hefði takmarkað vald og ef stórmál kæmu upp þá yrði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem þjóðin hefði síðasta orðið. Þetta væri hægt með að setja upp með tölvukerfi og væri hægt að koma upp aðstöðu á bæjarskrifstofum og í skólum þar sem þetta tölvukerfi væri alltaf til staðar og þar með hægt að framkvæma atkvæðagreiðslu með litlum fyrirvara og fólk mundi bara merkja við já eða nei þótt það vefjist fyrir okkar blessuðum þingmönnum að greiða atkvæði sem eru bara já eða nei. Tölvukerfin eru fyrir hendi nú þegar, allir skólar og bæjarskrifstofur eru með nettengt tölvukerfi og einfalt prógramm er allt sem þarf til að hrinda þessu í framkvæmd. Já þetta er framkvæmalegt ef út í það er farið og virðist þetta vera það eina sem eftir er því að það virðist ekki skipta máli hver er á þingi, eigin hagsmunir þingmanna mun alltaf ráða þeirra atkvæðagreiðslu en ekki hagsmunir þjóðarinnar. Jæja þá er búið að blása þessu frá sér. Annars er héðan að austan er allt gott að frétta og er vinnan enn jafn spennandi og eru tækifærin hér enn fyrir hendi, en það verður að sækjast eftir þeim og er ég bara að verða nokkuð góður í því. Er orðin þjálfari á hleifasteypu vél og náði ég þeim áfanga í síðustu viku en hef samt verið að þjálfa í nokkurn tíma á þessa vél en þessi vél framleiðir um 16 þúsund tonn af álhleifum á hverjum mánuði sem er aðeins meir en helmingur af mánaðar framleiðslu álversins. Já ef viljinn er fyrir hendi og markmiðið er innan eðlilegra marka þá er hægt að gera margt. Núna eru sumarfríin að byrja og eru nýir sumar starfsmenn byrjaðir að koma inn á starfsstöðvarnar hjá okkur og eru þetta ungt fólk á aldrinum 18 – 22 ára og eru þau um 100 sem koma inn í tveimur áföngum og nú er bara að koma þessu fólki inn í störfin á sem fljótasta og öruggastan hátt en samt þó á þann veg að þetta fólk skapi sér og öðrum ekki hættu við sín störf. Skrapp á Hvammstanga í síðasta helgarfríi og var það vel heppnuð ferð. Farið var í veiði í Hópinu í húnaþingi vestra og þar var veiddar 4 bleikjur sem voru um 4 – 5 pund hver svo bara nokkuð góður dagur þar. Annars er lífið ljúft ef maður lifir innan sinna marka en er ekki að lifa um efni fram. Jæja þá er þetta orðið nóg í bili. Munið bara að með brosi þá er hægt að gleðja marga. Með kveðju héðan úr litla kotinu á austfjörðunum. Keli
»
01.05.2009 03:01:32 / rkeli
Óska öllum baráttu óskir á þessum dag verkalýðsins. Hef ekki verið hér á íslandi á dag verkalýðsins síðan 1984 og þar af leiðandi veit ekki hvernig fólk ver þessum baráttu degi. Ég man að hér á árum áður þá var farið í skrúðgöngu og svo var hlustað á baráttu ræður frá fyrirmönnum og konum verkalýðsfélaganna og voru það yfirleitt mjög öflugar ræður og snérust þær um okkar baráttu gagnvart slæmum launasamningum og atvinnu aðstæðum. Svo eftir þetta var farið í 1 maí kaffi í Húsinu á Eyrarbakka og þar var oft gaman að hlusta á umræður eldri borgarana um hvernig þeir höfðu áunnið sér og öðrum hin ýmsu réttindi á vinnumarkaðnum með því einu að vera virkir félagar í sínum félögum og standa saman. Ég vona bara að sú sé staðan enn og að fólk standi saman í sinni baráttu fyrir bættum kjörum en á sama tíma sýni skinsemi á þessum erfiðu tímum í okkar þjóðfélagi. Jæja eru ekki allir sáttir við kosningarnar? Ég er sáttur við sumt en ekki við annað en var samt svolítið hissa á því hvað XD fékk mikið fylgi út úr þessu en honum var spáð verra en þessu, það sýnir bara að skoðana kannanir eru annaðhvort rangar eða þá að gullfiska minnið var alsráðandi á kosningardag. Gef nú ekki langan lífsaldur á nýja ríkisstjórn hjá samfylkingu og v-grænum ef að byrjunin ætlar að ganga svona illa, en samt er aldrei að vita. Annars eru þingmenn og konur V-Græna nú í óðaönn að gefa út mismunandi yfirlýsingar í sambandi við stefnu flokksins og þegar svo er málum háttað þá spyr maður hver er stefnan og hvar er flokksforustan. Samfylkingin segir ekki mikið nema þá að hún lætur alla vita að þau eru með völdin og geta valið sér samatarfs flokk eða flokka. Sjálfstæðisflokkurinn er enn að leita að einhverjum í hinum flokkunum til að kenna um hvernig komið er fyrir þeim, því ekki er hægt að kenna Dabba um hann bara brosir og segir að hann hafi varað þá við )))) Framsókn og Borgaraflokkurinn bíða bara eftir að allt fari í hönk hjá v-g og Samfylkingunni og vona að Samfylkingin hringi. Já og svo Frjálslyndaflokkurinn, hefur einhver séð eða heyrt of honum síðan fyrir kosningar.Nei það er mikill óvissa eins og er núna í íslenskum stjórnmálum og vonar maður bara að eitthvað skeður nú fljótlega í þessum málum því við megum ekki við því að deila innbyrðis á þessum tímum óstjórnar og neyðar laga. Eitt er ég samt ánægður með en það er það að kvenfólki fjölgaði á þingi og er það skref í rétta átt í málum jafnréttarinnar og nú er bara að sjá hvort þetta verði til hins betra eða ekki en samt til hamingju kvenfólk með ykkar árangur. Núna vonar maður bara að hjólin í efnahagsmálunum fari að snúast og stöðuleiki komist á gjaldeyris markaðina gagn vart okkar ónýtu krónu. Annars er ég hlynntur því að annar gjaldmiðill verði tekin upp hér á landi en samt vil ég ekki gefa auðlindir og frelsi þessa lands fyrir það. Því ekki að reina einhliða upptöku á evru eða bara $$ en í sambandi við $$ þá þurfum við ekki að gefa upp auðlindir né frelsi plús það að um 67 – 70% allra viðskipta í heiminum eru gerðar með $$. Nei ég gef þessu allavega tíma fram á haust áður en ég tek ákvörðun um hvort rykinu verði blásið af flug miðanum og það verður flutt aftur út eða verið hér til frambúðar. Ég skrapp á suðurnesin til Sibbu systir um síðustu helgi og var það gaman og gott að koma þangað í heimsókn og var staldrað þar við frá föstudag til mánudags morgun og einnig voru sumir ættingjar heimsóttir en því miður varð lítið úr öðrum heimsóknum en vonast til að bæta úr því þegar sumarið gengur í garð. Hér fyrir austan gengur allt vel og vinnan er fín og líkar mér vel í því sem ég geri þar og býður þetta upp á vissa möguleika ef áhugi og sjálfsstjórn er fyrir hendi. Annars er bara gaman að takast á við hin mörg og miserfið mál sem koma upp hér í álversvinnunni. Ég tek enn nokkuð mikið af aukavöktum hér og eru þær notaðar til að læra hin ýmsu störf og starfsaðferðir hér og einnig í endurmenntun og er það ýmis öryggis námskeið en ég var að klára síðasta öryggis námskeiðið í síðustu viku og einnig síðasta vinnuvéla prófið. Já verð bara að segja að lífið er ljúft ef að maður gefur sér tíma til að njóta þess. Jæja nóg í bili og munið bara eftir brosinu og lítið líka á jákvæðu hliðarnar í lífinu en það hjálpar mikið þegar á móti blæs. Með kveðju héðan úr litla kotinu á austfjörðunum, Keli
»
21.04.2009 13:11:03 / rkeli
Jæja þá er niðurtalningin til kosninga á loka dögunum, aðeins 4 dagar til kosninga. Þegnar landsins fá að láta álit sitt skína með því að merkja X eitthvað og vona að það verði upphaf að breytingum sem þessi þjóð þarfnast svo mikið. Ég sjálfur er búinn að kjósa og er það réttur sem hver og einn ætti að nýta sér en mitt álit er það að ef manneskjan kýs ekki þá hefur hún ekki rétt til að væla og tuða um stjórnmál. En hinsvegar ef aldri til kosninga er ekki náð þá er það sjálfsagt fyrir komandi kynslóð kjósenda að láta sitt álit í ljós og þar með móta sinn hug og stefnu á þessum vígvelli stjórnmálanna. Hvað fólk kýs er þeirra mál, en það er hinsvegar vitað mál að það eru mjög margir kjósendur sem eru flokksbundnir og kjósa sinn flokk og þá skiptir ekki máli hvort stefna flokksins sé raunhæf eða ekki. Þetta kalla ég ekki kosningu því í raun er manneskjan orðin eign flokksins og gerir allt í anda þeirra og þar á meðal að kjósa eitt en innst inni vilja eitthvað annað. Nei svona koma breytingarnar ekki, hver og einn verður að kjósa það sem samviskan segir og það sem er að þeirra áliti rétta stefnan til lausnar á vanda þjóðarinnar. Ekki vera eign flokkana, vertu sjálfum þér trúr og kjóstu það sem ÞÚ álítur að sé lausn fyrir þig og þína. Ég kem frá landi með tveggja flokka kerfi og virkar það bara furðanlega vel. Þar í kosningum var ekki bara sett X þessi flokkur eða X hinn flokkurinn, maður X við nöfnin og var þá valið eftir stefnu einstakra frambjóðanda. Í kosningum þar þá er yfirleitt kosið líka um breytingar á lögum, söluskatts álagningum og flestu sem mun hækka útgjöld skattþegnana og er það kallað þjóðarkosning um mál sem hafa áhrif á alla þjóðina. Það er kosið um hin ýmis þjóðarmál á tveggja ára fresti og kalla ég það lýðræði. Hér er ekki einu sinni hægt að koma frumvarpi í gegnum þing sem mun leifa þegnum þessa lands að hafa áhrif á afnot og eignarhald á náttúru auðlindum þjóðarinnar. Engar þjóðarkosningar um málefni sem skipta alþjóð og samt er þetta kallað lýðveldi, nei þetta er veldi fárra manna sem eru með fáa flokka í vasanum og dansa þessir flokkar í hvert skipti sem þessir útvöldu setja sína músík á. Annars vonar maður að breytingar séu á leiðinni en samt er sú von mjög veik þegar litið er á framboðslistana, flestir sem eru í efstu sætum listanna eru þeir sömu sem eru búnir að sitja undanfarið á þingi. Af hverju á maður að trúa að þetta fólk framkvæmi breytingar núna eftir þessar kosningar frekar en það stuðlaði að breytingum fyrir kosningar þrátt fyrir allar ógöngurnar sem þjóðin er kominn í. Nei með því að kjósa sama fólkið aftur þá erum við að gefa þessu fólki leifi til að halda sínu sukki áfram með gæðastimpli frá alþjóð. Ég er ekki að reina að segja einum né neinum hvað á að kjósa en bara vona að fólk horfi til framtíðarinnar og reyni að sjá hver eða hverjir sem eru í framboði hafa sömu skoðun og sama vilja sem þú hefur á vandamálum sem steðja að þessu þjóðfélagi. Já þegar þetta er allt búið þá höfum við öll kosið rétt samkvæmt okkar samvisku og er það eitt af því fáa sem við fáum að gera til að reina að stuðla að áframhaldandi lýðræði í þessu samfélagi. Annars af mér er allt gott að frétta, mikið unnið þessa dagana og líkar mér mjög vel í minni vinnu og eru vinnufélagarnir mjög samhentur hópur. Ég ætla að kíkja á suðurlandið nú um næstu helgi og verður keyrt suður á föstudag og aftur austur á mánudag. Þetta verður trúlega engin hvíldarferð og vonandi verður skroppið í einhverjar heimsóknir hjá fólki sem maður þekkir en sem hafa verið vanræktar undanfarin 25 + árin. Af fólkinu úti er allt gott að frétta, Stjáni er bara við það sama en samt fer þrekið hjá honum dvínandi en hann stendur sig samt eins og hetja miðað við aðstæður. Ég er í frýi í dag og verður ekki farið á vakt fyrr en annað kvöld og þá verða teknar tvær næturvaktir og svo verður brunað suður með fjörðunum og haldið á suðurlandið. Jæja nóg af þessum pælingum héðan úr litla kotinu á austförðunum, munið bara eftir brosinu því að þitt bros getur leitt af sér óvænt bros hjá öðrum. Kveðja Keli
»
12.04.2009 13:07:36 / rkeli
Í dag er sá dagur sem kristinnar trúar fólk minnist sem upprisu dag JESÚS KRISTS og er hans minnst á margvísan hátt um allan heim. Hér á landi þá fara margir til messu snemma morguns og síðan er deginum eitt í rólegheitum í faðmi fjölskyldunnar. Börnin fá páskaegg sem eru úr súkkulaði og er víst kominn sá siður hjá mörgum að fela þau, en það gerir þetta bara meir spennandi fyrir börnin og þá á sama tíma gefur meiri gleði til gefendanna. Úti í henni Ameríku þá er þetta aðeins öðruvísi. Þar eru notuð harðsoðin hænuegg sem eru máluð í regnbogans litum og taka krakkarnir yfirleitt þátt í því að skreyta og mála eggin laugardaginn fyrir páska. Síðan eru eggin falinn, yfirleitt úti í görðum ef vel viðrar en annars innandyra og þá er nú eins gott að öll finnist nú eggin. Krakkarnir fá síðan svokallaða páskakörfu sem eggjunum er safnað í. Þessu fylgir yfirleitt BBQ og leikir og er þetta dagur þar sem yngri kynslóðin fær að njóta sín. Einnig halda bæjarfélögin eggja leitar samkomur fyrir krakka og er það þá haldið í almennisgörðum og eru þá sett upp hin og þessi leiktæki fyrir þá af yngri kynslóðinni og er þá deginum eitt í garðinum. Já það er mikill munur á páskum hér og í henni Ameríku. Annars kann ég vel við rólegheitin sem eru hér en samt á sama tíma sakna útiverunnar og BBQ eins og er úti. Annars er spáin í dag þar sem ég átti heima 29°C og hálfskýjað með hægum sunnan vindi. Hér á austfjörðunum þá gengur lífið sinn góða gang. Það er mikið unnið og teknar aukavaktir og er verið að læra á mismunandi vélar á aukavöktunum, svo er mikið um endurþjálfunar námskeið sem þarf að fara á og er ekki hægt að segja annað en að maður hefur meir en nóg að gera. Maður gæti haldið að vorið sé að koma, það er farið að sjást í auða jörð á stökum stað og er snjórinn á hröðu undanhaldi og ætti að verða horfin úr byggð nokkuð fljótlega ef veður og hitastig halda svona áfram já og kannski að maður geti þá farið að leggja bílnum í innkeyrsluna en hún er búinn að vera full af snjó síðan í byrjun nóvember. Það hefur verið nokkuð mikið hugsað út í það undanfarið ef að þessir flutningar hingað til lands hafi verið rétt ákvörðun eða ekki. Síðan ég flutti hingað þá hefur þetta þjóðfélag farið frá því að vera álitið sem eitt af því besta í heimi til þess að verða álitið eitt af þeim verstu í heimi en þá á ég við fjárhagslega. Kaupmáttur launa hefur rýrnað mikið og virðist engin lausn vera á næsta leiti til að snúa því við. Atvinnuleysi heldur áfram að aukast og virðist eiga eftir að aukast meira áður en hlutirnir fara að snúast við, ef hlutirnir snúast þá við. Spillingin sem er hér allsráðandi virðist eiga sér engin takmörk og virðist sem að stjórnmála og banka menn og konur fari þar í fararbroddi og sjái sér enga skömm í því. En samt eru svo margir úr röðum hins almenna borgara sem horfa blint áfram og reynir að kenna utanað komandi öflum um hvernig komið er fyrir íslandi. Nei því miður þetta er allt okkar sök og þurftum við enga utanað komandi hjálp í þessu. Okkar stjórnarskrá og lög bjóða upp á þetta og svo hjálpar það ekki að svo margir íslendingar halda að þeir séu bestir í öllu og engin lög hins alþjóðaviðskiptaheims gildi yfir þá. Já margir hverjir af þessum leiðtogum íslenska atvinnulífs og stjórnmála ættu að líta í eigin barm áður en alheiminum er kennt um hvernig komið er fyrir okkur. Já svo spurningin er sú verður maður hér til framtíðar eða fer maður í fótspor svo margra sem eru nú um þessar mundir að pakka og flytjast búferlum til annarra framandi landa. Ég ætla að gera eins mikið og ég get til að vera hér áfram, en ef að kaupmáttur launa og skerðing á flestri almennri þjónustu heldur áfram að rýrna þá er þetta erfitt að vera hér. Ég er í þeirri stöðu að geta flutt á mjög auðveldan hátt út aftur en það er bara eitthvað sem ég vil ekki gera og það eina sem mundi ýta manni út í flutning er hvernig stefna nýrra ríkisstjórnar yrði í sambandi við hreinsun á allri þessari spillingu sem hér ríkir og ef einhverjir af svokölluðu útrásarvíkingum verða dregnir til saka fyrir þeirra gjörðir. Það er búið að sakfella hinn almenna borgara fyrir þetta með því að láta ríkið borga fyrir allt þetta sukk sem þessir menn og konur eru búinn að lifa í undanfarin ár. Já það er margt sem má lagfæra hér en því miður þá virðist sem að menn séu að tefja tímann og reina að láta rykið hylja fingraförin á allri spillingunni sem á undan hefur gengið hér á landi. Jæja þetta er bara mitt álit á hlutunum og vona að engin taki það nærri sér. Þá er bara að sína brosið og vera bjartsýnn á framtíðina. Með kveðju héðan úr litla kotinu á austfjörðunum, Keli
»
29.03.2009 20:27:01 / rkeli
Vá!!!! Hinn eingetni hefur talað en þá er ég að tala um Krist þeirra sjálfstæðismanna,Dabba á krossinum en hann sagði sjálfur svo frá að hann hafi verið krossfestur með sína aðstoðar menn sér við hlið. Já gat ekki stillt mig um að lesa ræður þeirra bræðra Dabba og Geirs frá landsfundi þeirra sjálfstæðismanna. Ég varð svolítið hissa á allri þeirra afneitun sem þessir tveir hafa gagnvart öllu sem hefur skeð hér á landi undanfarið og hvernig þessir tveir virðast vera að reina að kenna öllu upp á aðra. En samt þá baðst Geir Haarde afsökunar til sjálfstæðismanna fyrir mistökin og misstjórnina sem hefur verið á hans vakt EN hann hefur ekki beðið þjóðina afsökunar, humm það skildi þó ekki vera að þarna sé litið á sem sjálfstæðismenn séu eitthvað æðri en restin af þjóðinni. Dabbi baðst ekki afsökunar á neinu en þess í stað þá var allt sem skeði öllum öðrum að kenna og jafnvel hans eigin flokksbræður áttu sökina samkvæmt hans orðum. Já svo má ekki gleyma að það voru aðrir flokkar sem komu að stjórnarmálum og eru jafn sek um það að sofna á vaktinni. Ekki veit ég hverjir hafa verið í rúminu með sjálfstæðis flokknum síðustu 18 árin en trúlega eru þeir flokkar núna að reina að gleyma sem flestu úr þeirri hjónabands sælunni. Samfylkingin virðist vera að reina að koma böndunum á eitthvað af þessum ógöngum sem við erum kominn í en samt virðist sem þeirra róður sé erfiður og finnst mér að það vanti meiri hörku í það að opna leiðir til þess að hægt sé að sjá nákvæmlega hverjir eru það sem eru ábirgir á þessum ógöngum. Eitt er vitað sem þarf að gera er að opna öll bankagögn fyrir ákæruvaldið svo að hægt sé að komast til botns í þessum málum og svo ekki gefa neinum grið, láta þetta fólk svara fyrir sínar gjörðir og eignir og annað tekið upp í skuldirnar sem þetta fólk hefur velt yfir á hinn almenna borgara sem átti engan þátt í þessu nema þá helst að vera bara ÍSLENDINGAR. Vinstri Grænir virðast vera á annarri plánetu í öllu þessu og þeirra megin markmið virðist vera að stöðva allar framkvæmdir sem eru í gangi og þeirra framtíðar stefna virðist vera skattar og meiri skattar. Annars er ég að verða svo ruglaður í öllu þessu að þegar loksins kemur að kosningum þá klúðrar maður atkvæðinu sínu. En eitt veit ég hvað ég vil sjá koma út úr öllu þessu en það er þjóðarþing sem fær völd til að breyta stjórnarskránni en samt verður að bera breytingarnar undir þjóðaratkvæði og breytingar á kosningar fyrirkomulaginu þannig að hægt sé að kjósa manneskjurnar sem eru í framboði en ekki bara flokk og að maður geti raðað saman í þrjú til fimm efstu sætin í kosningum. Já hérna byrjar maður aftur, en við hverju má annars búast þegar maður hlustar á allt þetta svindl og þessi stórrán sem framin voru gagnvart hinum almenna borgara í þessu landi af þessum fáu útvöldu “þjóðar hetjum” okkar. Annars ætla ég að reina að halda mig á mottunni og reina að stýra mínum hugsunum frá þessum svarta bletti í okkar sögu, en það er bara svo erfitt að leiða þetta hjá sér og kannski er bara gott að tjá sig um þetta. Annars er beðið spenntur eftir að það verði byrjað að draga eitthvað af þessum svo kölluðum viðskiptasérfræðingum sem sáu um rekstur bankanna inn í yfirheyrslur og þeir kannski látnir taka ábyrgð á sínum gjörningum. Já og svo kannski láta þessa yfirborguðu rekstrarstjóra lífeyrissjóðanna svara fyrir um þeirra óstjórn á sjóðum almennings. Annars er útlitið frekar svart fyrir hinn almenna borgara sem þarf að stóla á lífeyrisgreiðslur til að halda sér á floti í þessu landi verðbólgunnar. Eignir sumra sjóðanna hefur rýrnað svo mikið að þeir geta ekki staðið við sínar skuldbindingar gagnvart sínum sjóðsmeðlimum. En það versta við þetta er að fólkið í þessu landi er skyldugt til að borga inn í þessa sjóði en hefur svo ekkert um það að segja hvernig peningunum er svo ráðstafað í sambandi við ávöxtun þessara sjóða, jú þetta eru peningar fólksins sem eru settir inn í þessa sjóði og þar af leiðandi ætti hinn borgandi sjóðsmeðlimur að hafa einhverskonar atkvæði um það hvert peningarnir fara til ávöxtunar. Já það virðist sem spillingin hafi náð að festa sig í öllu þar sem hinn almenni borgari hefur reynt að geima og ávaxta sitt sparifé. Annars er allt flott hér frá austfjörðunum. Veturinn kominn aftur með snjókomu og sínum kulda streng, en maður verður nú að viðurkenna það að veturinn er enn hér og þetta hlýinda kast sem kom hér í enda síðustu viku var bara eitthvað til að minna okkur á að það er kannski vor á leiðinni. Er búinn að vera í fríi síðan á föstudag og fer ekki að vinna fyrr en á þriðjudag svo það er bara hangið og leikið sér í snjónum. Fór á Seyðisfjörð á laugardag og var deginum eitt í það að labba um bæinn og skoða sig um. Varð heillaður af öllum þessum gömlu húsum þar en ég hafði komið á Seyðisfjörð síðast árið 1983. Ætlaði að keyra suður um þessa helgi en hætti við vegna þess hversu veðurspáin var ótrygg en fer bara á suður landið í mínu næsta langa fríi. Er annars á fullu að reina að skipuleggja sumarfríið en það virðist eitthvað ganga illa, en ég á heilan mánuð í frý en er aðeins búinn að skipuleggja um tvær vikur svo verð að koma upp með eitthvað meir að gera. Jæja þá er hann byrjaður að snjóa aftur og það er byrjað að bæta í vind líka svo kannski að veðurspáin rætist og að það verði ofankoma og rok hér í kvöld. Jæja komið nóg af þessu í bili. Munið bara að deila brosinu með öðrum, alltaf gaman að hitta brosmilt fólk sem maður þekkir ekki.. með kveðju héðan úr litla kotinu fyrir austan. Keli
»
20.03.2009 21:06:17 / rkeli
Ég bíð enn spenntur eftir að einhver verði fyrstur og lýsi opinberlega yfir að hann/ sú beri ábirgð á því hvernig komið er fyrir þessari þjóð, er ekki að segja að það sé bara einnar manneskju sök en það væri gaman ef einhver byrjaði að taka ábyrgð og svo er bara að vona að aðrir fylgi á eftir. En nei það skeður trúlega ekki, þetta fólk gerði ekkert vitlaust það er bara öllum öðrum að kenna. Því miður en þá er þetta al íslensk hugsun hjá viðskiptafólki hér á landi, við gerðum ekkert vitlaust og við erum best. Já það þarf bara að lesa greinar frá þessu fólki í blöðum og sjá viðtöl í sjónvarpi til að sjá að þarna er fólk á ferð sem hefur enga ábyrðar kennd gagnvart öðrum og er jafnvel tilbúið að skella sökinni á sína vini til að líta vel út í almennings auga þegar upp er staðið. Bara til að nefna dæmi en þá er maður nokkur kominn á framboðslista í komandi kosningum sem er Sturla nokkur bílstjóri og lofar hann að berjast fyrir réttlæti fyrir vini og fylgjendur en hvernig var það hérna í sumar hjá honum þegar hann afneitaði einum af sínum félögum þegar sá VINUR hafði barið á lagannavörðum inn á kirkjusandi. Þetta er bara smá dæmi um stutt minni og einnig um eiginhagsmuna stefnuna sem gildir hér í íslenskum stjórnmálum. Vona bara að íslendingar hugsi aðeins áður en gengið er að kjörkössunum nú í vor. Mér sýnist sem að þetta fólk sem er komið í efstu sætin hjá þessum flokkum sé nú þegar á þingi og veitir það bara á eitt, meira af því sama sem verið hefur hér undanfarin ár. Ef það eru engar breytingar á þingi þá er ekki hægt að vonast eftir miklum breytingum á stjórnarfarinu. Já íslendingar eru líka þektir fyrir gullfiska minni þegar kemur að kosningum, því miður en það hefur bara alltaf verið svoleiðis hér á landi. Jú ég er búinn að ákveða að kjósa en það verður erfitt að velja á milli loforðanna sem maður veit að eiga ekki eftir að koma fram því jú þetta eru kosningar loforð sem eru aðeins gild þangað til að hann/sú sem lofaði er kominn á þing en þá verður loforðið bara eitthvað sem var sagt í hita leiksins og þar af leiðandi ekki til umræðu lengur. Já því miður er stjórnmála útlitið ekki gott í mínum augum en vona bara að það sé bjartara í þínum augum. Nei nú er tími til að fólk rísi upp og heimti að það verði tekið harðar á þessu fólki sem er ábyrgt fyrir því hvernig komið er og það þíðir ekki að halda áfram að segja að þetta sé allt USA að kenna eins og margur landinn heldur fram. Jú mörg fjármála vandamál heimsins byrjuðu með hruni fasteigna lánamarkaðarins í USA en íslenska vandamálið byrjaði með græðgi nokkurra athafna manna hér á landi sem eiga fullt af gervi fyrirtækjum á eyjum sem eru í karabíska hafinu og eru falin á bakvið bankaleind bæði hér á landi og í Luxemburg. Bankaleindin virðist aðeins virka fyrir ákveðna landsmenn, ég þurfti að fá upplýsingar í sambandi við reikning sem ég er með í Glitni nú fyrr í vikunni og hringdi ég þangað til að fá upplýsingar í sambandi við reikninginn. Það eina sem ég var spurður um var kennitala og svo fékk ég allar upplýsingar um þennan reikning og líka var öllum upplýsingunum e mailað til mín og aldrei var ég spurður um nafn eða eitthvað annað sem gæti sannað að ég væri eigandi kennitölunnar sem ég gaf upp, hvar var mín bankaleind? Já það er ekki sama ef það er jón eða bara jón..Annars hefur hugurinn reikað út til USA undanfarna daga og er það trúlega af því að manni finnst það skömm að það virðist sem ekkert sé gert hér af ríkisvaldinu til að reina að stöðva þá sem eru ábyrgir fyrir landsins ástandi ná að draga þá til ábyrgðar á sínum gjörðum.Það má kaninn eiga að þeir eru ekki hræddir né sína biðlund gagnvart svona fólki og þegar kemur að bankaleind í USA þá er hún mjög sterk en ef þú hefur eitthvað að fela þá er hún engin og væri gaman að sjá samskonar vinnubrögð hér hjá hinu íslenska saksóknara embætti. Jæja þetta var bara smá innsýn inn í minn hugarheim í sambandi við ástand mála hér á íslandi. Annars er lífið hér á austfjörðum bara gott og nóg að gera. Veðrið er búið að vera algjört æði undanfarna 3 daga, en það var kærkominn breyting frá allri snjókomunni sem er búinn að vera hér undanfarnar vikur. Já logn og þetta um 7-12 stiga hiti síðustu 3 dagana en samt ekki nóg til að bræða allan snjóinn sem er hér og er enn allt alhvítt hér frá fjöru upp á fjallatindi. Ég hef verið að reina að taka aukavaktir undanfarið og er það gert til að læra á fleiri vélar hér, en með batnandi veðri og vorið á næsta leiti þá leitar hugurinn meira á vit fjallana en að fara á aukavakt í steypuskálanum hér hjá Alcoa. Af fólkinu í USA er það að allir eru við heilsu og allir eru vinnandi sem er alltaf gott að heyra á þessum tímum kreppu talsins. Af Stjána er það að frétta að hann er mikið við það sama en helgi sagði mér þó að hann er farinn að veikjast mikið og á ég þá við að hann er að tapa styrkleika með nokkrum hraða og er alltaf verið að verða erfiðara að geta komið honum í samband við nýrnavélina en það er sú vél sem heldur honum gangandi. Hann er ekki með neitt skammtímaminni og er ekki enn vitað hversu mikið langtímaminni hann hefur en hann virðist þó þekkja systkini sín en samt eru læknarnir ekki vissir ef svo er en fyrir öllu þá virðist honum líða vel í sínum heimi og er það vonin að hann muni ekki þjást í nánari framtíð. Jæja læt þetta duga í bili héðan úr litla kotinu á austfjörðunum og munið svo að brosa að náunganum því brosið er frítt og gæti glatt einhvern þó að við vitum það ekki. Kær kveðja Keli
»
02.03.2009 11:16:14 / rkeli
Afsakið en þessi færsla var óvart sett inn á ensku en hér er hún á íslensku. Vá þvílíkur dagur þetta var í dag! Veðrið var svo flott, logn heiðskýrt og 5 stiga frost og eins og maður segir fullkomin dagur fyrir göngu ferðir og að leika sér í snjónum. Ég labbaði hér inn í dalinn sem liggur inn af göngunum hér inn af Fáskrúðsfirði og var ég með stórt plastlok með mér sem ég notaði til að renna mér á niður dalshlíðina og var það alveg rosa fjör, maður var bara eins og unglingur aftur en samt allar þessar ferðir upp hlíðina létu mann þó vita að maður er engin unglingur en samt var þetta rosa gaman :>). Ég er núna að reina að skipuleggja sumarfríið en ég verð að gefa svar nú í vikunni um það hvenær ég ætla að taka mitt frý. Ég fæ 4 vikur í sumarfrí og tek ég það trúlega á tímabilinu 15 júlí til 15 ágúst en samt finnst mér þetta frekar langur tími. Ég er að hugsa um að eiða einhverjum tíma á ströndunum og þá í kringum hólmavík og þaðan norður í bjarnafjörðin og svo í trékyllisvík en þetta er landsvæði sem er með mikla náttúrufegurð sem verður gaman að skoða jú og svo er aldrei að vita nema að maður rekist á einhverja ættingja á þessum slóðum en 4 vikur er samt of mikið af því góða. En svo getur allt þetta breyst og að maður skelli sér aftur heim og eiði 2-3 vikum í hitanum og rakanum á Florida. Ég á einn góðan vin í Florida sem fer niður á strönd á hverjum morgni og tekur myndir og svo e mail hann mér myndir frá ströndinni á hverjum degi í von um að ég fái heimþrá og mér snúist hugur og flytji aftur heim. En það er bara gaman að fá allar þessar strandarmyndir frá honum. Já það er samt margt sem maður saknar að heiman en það er samt ennþá meira hér á Íslandi sem mér líkar við og gerir það gæfumuninn svo það eru mjög litlar líkur á því að maður flytji aftur út. Í USA fer atvinnuleysið vaxandi og er það komið upp í um 8-9% og er það frekar mikið ef litið er á það að venjulega er það aðeins um 3 - 3.5%. Annars er skortur á fólki í mína gömlu atvinnugrein og talið að það vanti um 150-200 þúsund bílstjóra í langferðirnar en þeim fer alltaf fækkandi sem vilja vera að heiman í 4-8 vikur í ferðinni. Annars sakna ég keyrslunnar en það er bara eitthvað sem er mjög erfitt að losna frá en í hvert skiptið sem ég sé stóran dráttarbíl með tengivagn þá fæ ég þessa löngun til að fara aftur í keyrsluna en innst inni þá veit ég að sá tími er liðinn. Ég er mjög sáttur með mína vinnu hér hjá Alcoa og er þetta gott starf og svo líka er fólkið sem vinnur með mér á vaktinni frábært og allir mjög samhentir og er þetta eins og ein stór fjölskilda hér á A vaktinni í steypuskálanum. Svo líkurnar á breytingum eru ekki yfirvonandi eins og málin standa í dag og yrði það ábyrgðarleysi ef maður færi að hugsa um atvinnuskipti á meðan heimurinn er í þessum fjármála fjötrum. Ég hef verið að hlusta á útvarp og einnig lesið fréttablöðin og er ég mjög hissa á því að flestir sem sitja þing núna séu að bjóða sig aftur fram til þings, þetta fólk greinilega kann ekki að skammast sýn fyrir allt það sem það lét ske hér á landi á þeirra vakt. Ég má kjósa hér á landi núna í komandi kosningum og er það í fyrsta skiptið í yfir 25 ár sem ég kýs hér á landi en það er bara eitt vandamál með það en það er að ég hef ekki fundið neinn sem er að reyna að bjóða sig fram til alþingi sem er þess virði til að eiða mínu atkvæði á. Svo núna er bara vonin sú að einhver komi fram sem er þess virði að kjósa. Jæja núna er ég byrjaður á þessum hugsunum um stjórnmál en ég er að reina að halda mig frá þeim málum hér á þessari síðu. Svo ég segi bara, haldið áfram að brosa því brosið getur gert svo mikið fyrir þá sem við þekkjum og þekkjum ekki. Með kveðju héðan úr litla kotinu á austurlandinu, Keli.
»
02.03.2009 01:40:23 / rkeli
Wow what a day to day!! Weather was calm and skies clear and it was about -5C just perfect for walk and play in the snow. I went for walk in to the valley just past the tunnels here in Faskrudsfjordur and had a piece of plastic lid that I used to slide down the valley side and yes it was fun to be like a kid again but all this climbing back up did tell me that I am no teenager anymore but dam it was fun. I am now in full swing trying to organize my summer vacation but I have to give answer this week on when I will take my time of. I have 4 weeks of vacation this summer and I will probably take it from 15th of July to 15th of august. I want to spend some time on the area surrounding Holmavik and Bjarnafjordur and hopefully I will be able to go north to Trekyllisvik and just explore the area and enjoy the magnificent landscape that this area offers and maybe I will run in to some relatives to. But four weeks of vacation is too much but the company says that is what we have to do. But all this can change when summer time comes around. I may just jump on to plane and fly back home for two or three weeks of hot and miserable Florida heat and humidly. I have this one friend back home that goes down to the beach every morning and takes photos and then he emails them to me in hope to get me homesick so I move back home, sick bastard but it don’t work then on second thought it is always fun to get good beach photos. Yes there are many things back home that I miss but then there are many things here in Iceland that I like to and right now Iceland is the winner and be quite honest then it is not that great of a change that I move back. Back in USA unemployment is on rise and is now around 8 -9 % and that is quit a large number consider that in normal year then it is around 3 – 3.5 % so yes unemployment is high over there. In my old job field there is a shortage of people and the driving industry is short of about 150 – 200 thousand drivers and is that mainly because that nobody wants to be away from home 4 – 8 weeks at the time like this jobs call for. I feel that now that I miss my old job I mean driving but that is something that is hard to get rid of, it just sits back in my head and pops up every time I see a large tractor trailer not like that I will go back to that again just a weird feeling. I am happy at my job to day and like this more than I expected and right now there is no plans for changes and be quite frankly then it is irresponsible to try to change jobs to day in Iceland. I have been listening to radio and reading newspapers and I am quit shocked to see that most of the people that are sitting on the parliament today are running again for office, this people apparently don’t have any shame about what they let happening to this country. Yes and now for the first time in 25 years I will be able to cast my vote here in Iceland in this coming election but there is a problem, I can’t find anyone that is trustworthy and has announced that he or she are running for the office. So now I just hope that someone emerges from the general public that has what it takes to win over my vote. Well I am getting back in to these thoughts on politic and it is something that I am trying to stay away from. So I just say keep on smiling and remember that your smile can make a big different for someone that you don’t know. So I say hi to you all from the little house here in east Iceland. Keli
»
20.02.2009 14:17:16 / rkeli
What a mess, Icelandic politic is at its worst this day’s. People of this country have asked for change and now it looks like it is not going to happen. Thru mine eyes it looks like the same people that are sitting on the parliament now are the same one that are going to be running for the office in coming elections, so where is the change going to be at? It looks it is not going to be at the government level nor at the parliament neither. Why do we need 63 representatives in the parliament? It is not like we have that big of a population that we need all this blood sucking men and women in there. My suggestion is that it will be about 30 at the most and the prime minister will also be elected but the rest of his cabinet will be hired thru normal hiring process and then confirmed of a committee that has 1 person from each party that has a representatives sitting at the parliament. People are asking for change in laws and that we can vote for individual person instead of a party but I believe that will never happen. Why? Well you have 63 men and women that are not going to vote for it because it will probably leave most of them out of the race. And then they are going to be out of job to because on the reassume it is going to look bad if your last job was representative at the parliament. If just by reading the papers here and lichen to news then it makes all normal people sick, it is full of news about how these business heroes did their businesses and how they fooled the whole nation in to their scams. Those are hundreds of company’s but only 20 – 30 owners and none of them has been implicated in some wrong doing by the government yet though all have been charged and found guilty by the street court of the general public here. So when is the government going to wake up and start handing out some charges or at least starting to put some restriction on this people that are responsible for all this mess. It will probably not happen by this government and truly not by any Icelandic government that is going to be elected under current rule that is in place now. Why do I say that? Because it is my believe that most or not all of this parliament that is sitting today has their dirty fingers up to the neck in all this mess and if they charge any of this so called “hero’s” then they are going to sign their own resignation. Yes welcome to Iceland, paradise in the north where you will be brought back to the mid seventy’s. Where people live on fish and sheep’s and o yes we kill whatever swims near the island, whales and seals to. Yes that’s what Icelandic commercial can look like in two or three years from now if no changes will happen soon. So what can Icelandic people do about all this, not much if there are no changes to the laws regarding election laws? Same election laws and pre election rules will only result in the same. Same people will be sitting at the parliament and same people will buy back the banks and the suck and the party by this “hero’s” will continue under same rulers. No it is time for some changes and I just hope that some people step forward and take this election by storm and do the necessary changes that are needed to the laws of this country so we can live on as a nation in to the unknown future. This writing is only my view and my thoughts on different subjects that are swimming around in my head. Take care you all, Keli
»
16.02.2009 01:28:42 / rkeli
Jæja ekki hefur verið mikið skrifað hér að undanförnu en vinnan hefur tekið upp mikið af mínum tíma undanfarnar tvær vikur. Var annars að hugsa um að hætta að skrifa hér en svo eftir þó nokkrar pælingar og hugsanir þá var ákveðið að halda þessu áfram, jú þetta er góð aðferð til að hleypa hugsunum út og einnig að setja sínar pælingar á blað en ekki bara leifa þeim að sveima um í höfðinu og ekki láta þær hvorki komast eitt né neitt. Er orðinn frekar þreyttur á öllu þessu kreppu tali en samt er fylgst vel með því sem er að ske og er maður orðinn dofin af reiði og vantrúnaði yfir því sem þessir stjórnendur banka og sumra fyrirtækja hafa komist upp með síðustu árin. Svo maður spyr sig, hvar voru ríkisstofnanirnar á meðan að allt þetta var að ske? Jú af flestum fréttum nú undanfarna daga þá virðist sem þessir sem áttu að vera á verðinum hafi verið að taka þátt í þessari sukkveislu líka. Jú það er meðal á leiðinni gegn þessu ástandi og er það kallað kosningar og eru þær aðeins í um 70 daga fjarlægð. En er það meðalið sem þessi þjóð þarf? Maður er farinn að sjá nöfn sem vilja komast í ákveðin sæti á framboðslistum flokkana en því miður þá eru þetta nöfn sem hafa tengst stjórnmálunum og flest verið viðriðin núverandi þingheimi en ég lít á málið þannig að þingheimur og ríkisstofnanir séu jafn ábyrgar eins og svo kallaðir útrásarvíkingar. Svo spurningin er sú af hverju ættum við þá að kjósa þetta fólk aftur? Hvar eru breytingarnar sem megin þorri þjóðarinnar hefur verið að berjast fyrir? Svo vonin er sú að það komi fram fólk sem er með haldgóða lausn á okkar vanda og er tilbúið að troða sér upp og leifa okkur hinum að kjósa það sem okkar fulltrúa í þessum málum. Svo bætir ekki um þessi bófa leikur á milli Dabba og ríkisstjórnarinnar. Dabbi er að verða einn stærsti smánarblettur í íslenskum stjórnmálum, af hverju er hann ekki bara rekinn? Ef þetta væri í einhverju öðru landi á þessum hnetti þá væri hann ( Dabbi) án vinnu. Hefur hann svona mikill völd að engin þorir að standa upp á móti honum.Ég neita því ekki að hugsunin hefur komið upp undanfarið um að flytja aftur út til Florida, en svo þegar maður hugsar betur út í þetta þá er það ekki lausnin. Ég er í góðri og öruggri vinnu hér og svo er ástandið í USA ekki það bjart núna. Jæja nóg um þetta, maður verður bara vondur og sár þegar hugsað er um þessar afleiðingar spillinguna hjá ráða mönnum þessara banka og stofnana og ekki má gleyma þingheim og ríkisstofnunum heldur. Er núna að berjast við það hvað á að gera í sumarfríinu, verð að gefa upp núna á næstu dögum hvenær ég ætla í frý. Ég er en að skipuleggja hvað verður gert í fríinu en langar að ferðast um landið og þá helst á staði sem eru fáfarnir og hægt verður að slappa af og fara í göngur og veiði. Vestfirðirnir hafa aðdráttar afl en svo gera líka norðanverðir austfirðirnir og melrakkasléttan. Einnig væri gaman að geta eitt smá tíma með ættingjum líka í sumar. Hef verið spurður af hverju ekki að skreppa til FL, en ég bara get ekki séð mig missa af íslenska sumrinu til að fara til FL og vera þar í hitastækju og raka með hitan um og yfir 35C daglega, væri frekar nær að fara þangað í March or April þegar veðrið er perfect. Hef ekki heyrt mikið að utan en eftir því sem ég veit best þá er allt við það sama þar og verður vonandi hringt út núna í vikunni og reynt að fá fréttir. Jú þetta er svolítið erfitt að fá ekki fréttir oftar og þá helst af Stjána en ef það verða einhverjar breytingar hjá honum þá hringir Helgi strax svo þá er það á hreinu. Af mér þá er allt gott og er meir en nóg að gera í vinnunni núna en ég er að taka aukavaktir núna og er verið að læra á aðrar starfsstöðvar svo maður geti flakkað á milli starfsstöðva ef þörf er á og jú fengið kauphækkun líka. Það er eitt hjá þessu fyrirtæki að ef þú ert viljugur til að læra á fleiri starfsstöðvar þá hvetja þeir þig til að gera svo en samt ýta þeir ekki á eftir þér og maður gerir þetta á þeim hraða sem maður vill. Svo verður maður að gera þetta á frívöktum og að passa upp á að sín eigin vakt líði ekki fyrir þetta. Er byrjaður að labba aftur á fullu og er verið að reina að koma sér í form fyrir sumarið og er jafnvel verið að hugsa um að byrja á því að fara í líkamsrækt en Alcoa borgar hluta að félagsgjöldum sem snúast að líkamsræktinni svo hver veit nema að það verði að veruleika einn daginn. En annars eru svo mörg fjöll og mikið um gönguleiðir hér að það ætti að duga en maður lætur tímann skera úr um það hvað skeður í þessum málum. Ég missti af þorrablótinu á bakkanum en var að vinna auka vaktir þá helgi og var bara farið út í búð og keypt lítil fata með blönduðum súrmat og var svo haldið upp á þorrann hér heima. Já maður verður að bjarga sér þegar ekki er hægt að komast þangað sem maður vill fara. Jæja læt þetta duga í bili og sendi BROS :>) til allra héðan úr litla kotinu á austfjörðunum. Með bros kveðju, keli PS! Hér fylgir með web address sem liggur á myndasíðu sem ég er að setja upp en er samt ekki komin með mikið af myndum en ég áforma að setja inn þar myndir sem teknar verða hér á Íslandi og jú líka myndir sem ég hef tekið erlendis en það verðu bætt inn á þessa síðu eftir því sem tíminn leifir. http://picasaweb.google.com/ThorkellR
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
Dagatal
| september - 2010 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | | | 1 | 2 | 3 | 4 | | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | | Fyrri | Næsti |
|